Actic á Íslandi - heilsurækt og sund - Upphafssíða
 

 

Tilboð á árskortum framlengt til og með 6. febrúar 2012


Vegna fjölda áskorana höfum við ákveðið að framlengja frábær tilboð á árskortum til og með 6. febrúar 2012.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Opnum nýja stöð í Grindavík í janúar 2012


Í janúar 2012 munum við opna enn eina Actic heilsuræktina. Nýjasta stöðin verður í staðsett í sundlauginni í Grindavík. Við tilkynnum nánar um opnunina á síðunni þegar þær upplýsingar liggja fyrir.
Starfsfólk Actic á Íslandi


ÁRSKORT Á TILBOÐI


Actic bíður enn og aftur ótrúlegt tilboðsverð á árskortum í sund og líkamsrækt í Kópavogi eða kr. 33.990 (þ.e. kr. 2.833 á mánuði). Vaxtalausar Visa/Euro léttgreiðslur í boði. Kortið gildir í líkamsrækt, spinning og sund í Sundlaug Kópavogs og líkamsrækt og sund í Salalaug. Allir sem kaupa kort geta pantað sér ókeypis tíma með þjálfara sem kennir á tækin og útbýr sérsniðna æfingaáætlun.
Tilboðið gildir til 20.janúar 2012. Hægt er að nota aðrar Actic stöðvar utan Kópavogs gegn greiðslu aðgangseyris í sund á viðkomandi stað.

Í Hafnarfirði er tilboðsverðið kr. 31.990 (þ.e. kr. 2.666 á mánuði). Vaxtalausar Visa/Euro léttgreiðslur í boði. Kortið gildir í líkamsrækt, spinning og sund í Suðurbæjarlaug og einnig í sund í Ásvallalaug. Allir sem kaupa kort geta pantað sér ókeypis tíma með þjálfara sem kennir á tækin og útbýr sérsniðna æfingaáætlun.
Tilboðið gildir til 20.janúar 2012. Hægt er að nota aðrar Actic stöðvar utan Hafnarfjarðar gegn greiðslu aðgangseyris í sund á viðkomandi stað.

Á ÖÐRUM ACTIC STÖÐVUM ERU EINNIG TILBOÐ Í GANGI, VINSAMLEGAST KYNNIÐ YKKUR ÞAÐ Á VIÐKOMANDI STAÐ.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Nýtt vídeó frá stöðvunum okkar


Hér að neðan sést nýtt myndband frá stöðvunum okkar. Njótið vel.

Starfsfólk Actic á Íslandi


Frábær útispinningtími í Sundlaug Kópavogs - vídeó


Hér að neðan sést myndband úr útispinningtíma sem við vorum með í Sundlaug Kópavogs fimmtudaginn 18. ágúst síðastliðinn. Eins og sjá má var frábær þáttaka og veðrið lék við okkur. Þökkum frábærar viðtökur.

Starfsfólk Actic á Íslandi


Ný grein eftir Hlöðver Jökulsson


Hlöðver Jökulsson sjúkraþjálfari og leiðbeinandi hjá Actic heilsurækt skrifar áhugaverða grein um Gluteus medius/minumus syndrome(GMS) undir Heilsupistla tenglinum hér að ofan. Hvetjum alla til að kíkja á greinina.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Vöxtur hjá Actic í Evrópu


Undanfarið hefur Actic opnað fleiri stöðvar í Evrópu. Tvær stórar stöðvar voru opnaðar í Svíþjóð, önnur í Örebro og hin í Lundi. Á næstunni mun stór stöð opna í Mönchengladbach í Þýskalandi auk fleiri smærri stöðva vísvegar í Þýskalandi. Á Íslandi eru stöðvarnar 9 talsins.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Vetraropnun um helgar í Kópavogi


Í vetur mun opnunartími um helgar í sundlaugunum í Kópavogi verða þannig að opið er frá 8 til 18 laugardaga og sunnudaga í Sundlaug Kópavogs og 10 til 20 laugardaga og sunnudaga í Salalaug. Opnunartími virka daga er óbreyttur.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Yfirlýsing frá Actic vegna fréttaflutnings RÚV um árskort


Af gefnu tilefni vill Actic heilsurækt á Íslandi koma eftirfarandi á framfæri vegna fréttaflutnings RÚV um árskort í líkams- og heilsuræktarstöðvum.
Hjá Actic heilsurækt hefur sú regla ætíð gilt að árskort gildir í ár frá kaupdegi og þegar sá tími er liðinn er kortið útrunnið, þ.a. iðkandi þarf ekki að segja því upp. Ef iðkandi vill halda áfram iðkun þarf hann að hafa frumkvæði af því að endurnýja kortið sjálfur og er þá gerður nýr eins árs samningur.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Spinning að hefjast eftir sumarfrí


Nú erum við að fara í gang með spinning dagskrána aftur eftir rólegheit í sumar. Spinning stundaskráin gildir frá og með 22. ágúst í Kópavogi og frá 27. ágúst í Hafnarfirði. Kíktu á stundatöfluna sem er undir Spinning valmyndinni hér að ofan.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Ný grein eftir Hlöðver Jökulsson


Hlöðver Jökulsson sjúkraþjálfari og leiðbeinandi hjá Actic heilsurækt skrifar áhugaverða grein um Gluteus Medius og áhrif á göngulag undir Heilsupistla tenglinum hér að ofan. Hvetjum alla til að kíkja á greinina.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Pantaðu ókeypis tíma hjá þjálfara


Hjá Actic geturðu pantað þér ókeypis tíma með þjálfara t.d. ef þú þarft að fá nýja æfingaáætlun, læra á ný tæki eða vilt einfaldlega láta þjálfarann kíkja á þig þegar þú ert að æfa. Hafðu samband við þjálfara og bókaðu þig í tíma, við tökum vel á móti þér.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Frístundar- og unglingakort


Um leið og við fögnum góðum viðtökum vegna samstarfs í tengslum við Frístundarkort Reykjavíkur og Kópavogsbæjar sem hefur leitt af sér fjölda nýrra iðkenda, þá hvetjum við að sjálfsögðu þá sem ekki hafa nýtt sér þá möguleika sem samstarfið bíður uppá að gera svo.
Unglingakortin okkar fyrir unglinga 13-16 ára hafa verið að slá rækilega í gegn enda á frábæru verði eða einungis kr. 19.990. Stuðlum að heilbrigðu líferni, meiri samveru og aukinni hreyfingu með því að sameinast um að fara saman í ræktina með börnunum okkar.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Actic með 9 stöðvar víðsvegar um landið!


Actic heilsurækt er með níu heilsuræktir tengdar sundlaugum hér á landi, í Kópavogi, Hafnarfirði, Álftanesi, Vogum, Selfossi, Hellu, Vík og Vestmannaeyjum.
VIð minnum á að kortið þitt gildir í líkamsrækt og sund í því bæjarfélagi sem það er keypt í en þú getur notað aðrar Actic stöðvar gegn greiðslu aðgangseyris í sund á viðkomandi stað. Mikil aðsókn er í allar þessar stöðvar og kunna meðlimir Actic á Íslandi greinilega að meta stöðvarnar og nálgast nú meðlimirnir 10.000 talsins. Við þökkum iðkendur fyrir að velja Actic um leið og við hvetjum alla til þess að stunda heilbrigt líferni og hreyfa sig reglulega.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Actic líkamsrækt og sund á sama stað í Sundlaug Kópavogs, Salalaug í Kópavogi, Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði, Íþróttamiðstöðinni á Álftanesi, Íþróttamiðstöðinni Vogum og Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum:


Ókeypis prufutímar hjá Actic

Hjá Actic á Íslandi getur þú farið í ókeypis prufutíma undir leiðsögn þjálfara. Hafðu samband með því að hringja í viðkomandi stöð og pantaðu tíma (símanúmerin finnur þú neðst á síðunni).

Starfsfólk Actic á Íslandi tekur vel á móti þér!


© Actic - Actic á Íslandi - Símanúmer: 570 0470 (Sundlaug Kópavogs), 570 0480 (Salalaug í Kópavogi), 565 3080 (Suðurbæjarlaug Hafnarfirði), 565 2511 (Íþróttamiðstöð Álftaness), 424 6545 (Íþróttamiðstöðin Vogum) og 488 2401(Íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum)  - Senda póst

Tilkynningar:

Við bjóðum uppá gott verð á árskortum. Sjá hér

Hjá Actic á Íslandi getur þú pantað prufutíma undir leiðsögn þjálfara án nokkurs kostnaðar!
Kíktu á hópinn okkar á FACEBOOK