ACTIC

Um Nautilus - Actic á Íslandi - Nautilus aðferðin

Nautilus

Bandaríkjamaður að nafni Arthur Jones var mjög áhugasamur um heilsurækt á fyrri hluta 20. aldar. Árið 1930 hóf hann að þróa sérstök tæki til þjálfunar. Fyrsta Nautilus tækið bjó hann til í Tulsa í Oklahóma árið 1948, svokallað  super pullower”. Hann hélt áfram þróun á líkamræktartækjum og árið 1970 kom fyrsta Nautilus tækið á markað. Alla tíð síðan hafa tækin verið í stöðugri þróun.

Nautilus hefur það umfram aðra framleiðendur líkamsræktartækja að hafa þróað sérstaka æfingaaðferð (Nautilus aðferðin) til að allir þeir sem nota tækin fái sem mest út úr æfingunum. Nautilus aðferðin hentar öllum og allir Nautilus meðlimir læra aðferðina hjá þjálfara í fyrsta sinn sem þeir koma í Nautilus heilsuræktina. Nautilus tækin eru framleidd í Bandríkjunum og til frekari fróðleiks um þau bendum við á heimasíðu Nautilus:

www.nautilus.com

Upp


Actic á Íslandi

Actic á Íslandi. Actic gym&bad er stærsta líkamsræktarkeðja í Skandinavíu með á annað hundrað stöðvar. Fyrsta Actic heilsuræktin hér á landi opnaði í sundlaug Kópavogs í september árið 1997. Í mars 1999 opnaði svo önnur Actic heilsurækt í Suðurbæjalaug í Hafnarfirði. Þriðja og jafnframt stærsta Actic heilsuræktin opnaði svo í janúar 2005 í Salalaug í Kópavogi. Fjórða Actic heilsuræktin opnaði í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi árið 2006. Í janúar 2007 opnaði Actic svo sjöttu stöðina í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum og síðar sama ár í íþróttamiðstöðinni í Vogum Vatnsleysuströnd. Næsta ár eða í janúar 2008 stækkaði svo aðstaða Actic í sundlaug Kópavogs þegar ný sundlaug var tekin í notkun. Í byrjun árs 2009 stækkaði Actic stöðin í Suðurbæjarlaug Hafnarfirði þegar nýr salur var tekinn í notkun. Í maí 2009 opnaði sjöunda Actic heilsuræktin á Íslandi í sundhöll Selfoss. Í sama mánuði stækkaði stöðin á Álftanesi þegar ný glæsileg sundlaug var tekin í notkun. Í júlí 2009 opnaði stöð á Hellu og í janúar 2010 var opnuð stöð í Vík á Mýrdal. Allar stöðvarnar eru glæsilegar, búnar fullkomnustu Nautilus tækjunum ásamt fjölda þrektækja og lausra lóða. Þúsundir hafa æft í stöðvunum undanfarin ár og notið persónulegrar þjónustu hæfra þjálfara.

Árið 2002 hlaut Actic stöðin í sundlaug Kópavogs gullverðlaun Actic fyrir framúrskarandi þjónustu og tryggð viðskiptavina og var þar með valin sú besta af öllum Actic gym&bad stöðvunum.

Actic gym&bad keðjan er með stöðvar á öllum norðurlöndunum, Bretlandi, Sviss og Póllandi. Actic meðlimir geta æft á öllum þessum stöðvum gegn greiðslu aðgangseyris í sund á staðnum. Þannig að kortið gildir alltaf í sund og sal á þeim stað/sveitarfélagi sem það er keypt, en sé farið í aðra Actic stöð/sveitarfélag þá þarf að byrja á því að greiða fyrir aðgang í sund og þá er hægt að æfa í Actic stöðinni. Til að skýra þetta betur er best að taka dæmi: Kort sem keypt eru í Kópavogi duga því í báðar stöðvarnar sem eru staðsettar í Kópavogi en ef farið er í Hafnarfjörð, þá þarf að greiða í sund sérstaklega. Sama á að sjálfsögðu við um kort sem keypt eru í Hafnarfirði, það þarf að greiða í sund í Kópavogi en aðgangur að líkamsræktinni er innifalinn í kortinu. Við bendum á heimasíðu Actic gym&bad sem er að finna á slóðinni: www.nautilusgym.se.

Actic býður upp á ókeypis prufutíma sem fer fram undir leiðsögn þjálfara. Panta þarf tímann og er aldurstakmarkið 16 ára (10. bekkingar fá aðgang að stöðvunum).

Actic kappkostar að bjóða hagstætt verð á árskortum sem gilda bæði í sund og heilsurækt þannig að sem flestir eiga möguleika á að æfa við bestu mögulegu aðstæður. Actic býður meðlimum upp á ókeypis fitumælingar, ráðleggingar varðandi mataræði o.fl.

www.nautilus.com

Upp


Nautilusaðferðin

Nautilus aðferðin. Milljónir manna um heim allan æfa eftir Nautilus aðferðinni (high intensity training) á degi hverjum. Allir sem æfa hjá Nautilus læra aðferðina í fyrsta tíma og fá kennslu á tækin og uppsetta sérsniðna æfingaáætlun.

Nautilus tækin hafa þá sérstöðu að hafa Nautilus skelina innanborðs en hún gerir það að verkum að þegar lyft er í tækjunum þá breytist mótstaðan og átakið helst því jafnt allan hreyfiferilinn (= isotonisk dynamisk variable resistance). Þetta gerist hins vegar ekki þegar æft er t.d. með lausum lóðum en þá er mótstaðan t.d. í bekkpressu mest í byrjun hreyfingar á leiðinni upp en verður svo auðveldari þegar líður á lyftuna. Nautilus skelin gerir því sérhverja lyftu í tækjunum erfiðari og áhrifaríkari og því næst þessi góði árangur með Nautilus aðferðinni. Nautilus æfingaaðferðin er þar af leiðandi gríðarlega áhrifarík, sérstaklega m.v. þann tíma sem notaður er í að æfa (30-45mín).

Í þolþjálfun er mælt með að æfa í 15-30 mínútur með álagið 70-85% af hámarkspúlsi (hámarkspúls er 220-aldur). Í styrktarþjálfun er mælt með að fara einu sinni í hvert tæki. Farið er í 8-12 tæki á æfingunni og endurtekningarnar í hverju tæki eru á bilinu 8-15 og nota skal 70-85% þyngd af hámarksþyngd. Síðustu 2-3 lyfturnar í sérhverju tæki eiga að reyna það vel á að ekki sé unnt að framkvæma fleiri   Þegar þyngt er í tækjunum er gott að auka við um c.a. 5% í einu.

Þegar lyft er í tækjunum er alltaf sama aðferðin notuð. Hver lyfta tekur um 6.sek, þ.e. 2 sek. í byrjun átaks = vöðvi styttist, stoppa svo 1 sek og svo 4 sek. á bakaleiðinni = vöðvi lengist. Styrktaræþjálfunin tekur því yfirleitt um 30-45 mínútur. Teygt er á vöðvunum í lokin í a.m.k. 5-10 mínútur.

Mælt er með að æfa 2-3 sinnum í viku til að halda sér í formi og hugsa um heilsuna. Munið að hvíldin er gríðarlega mikilvæg og því er ekki æskilegt að lyfta 2 daga í röð á sömu vöðvahópana.  

Þjálfun með Nautilus aðferðinni hentar öllum og tekur ekki langan tíma en sá tími skilar sér m.a. í eftirfarandi. Þú færð kröftugri vöðva og sterkari bein, sinar og liðbönd. Meiðslahættan er í lágmarki og liðleikinn eykst. Þú verður sterkari og brennslan verður hraðari. Þolið batnar og þér líður betur.

Rannsóknir sýna að þegar Nautilus aðferðin er notuð til að styrkja sig þá fær maður jafn mikla styrktaraukningu út úr æfingunum þegar maður gerir hverja æfingu einu sinni vel = eitt gott gæðasett eins og að gera hverja æfingu 2-3 sinnum ekki eins vel. Það er því ekki einkennilegt að fleiri og fleiri nýti sér Nautilus aðferðina til að halda sér í formi.

www.nautilus.com

Upp


Rekstrarstjóri Actic á Íslandi

Kjartan Már Hallkelsson íþróttakennari frá íþróttakennaraskor KHÍ 1998. Rekstrarstjóri og yfirleiðbeinandi Actic á Íslandi. Senda póst.


© Actic - Actic á Íslandi - Símanúmer: 570 0470 (Sundlaug Kópavogs), 570 0480 (Salalaug í Kópavogi), 565 3080 (Suðurbæjarlaug Hafnarfirði) , 565 2511 (Íþróttamiðstöð Álftaness) og 488 2401(Íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum) - Senda póst

Tilkynningar:

Við bjóðum uppá gott verð á árskortum. Sjá hér

Hjá Actic á Íslandi getur þú pantað prufutíma undir leiðsögn þjálfara án nokkurs kostnaðar!
Kíktu á hópinn okkar á FACEBOOK