Actic á Íslandi - heilsurækt og sund - Upphafssíða
 

 

Breyttir opnunartímar í Kópavogi


Í Kópavogi hafa opnunartímar breyst lítillega. Opnunartímar verða sem hér segir:
Sundlaug Kópavogs mánudaga til fimmtudaga 06.30 til 22.00, föstudaga 06.30 til 20.00, laugardaga og sunnudaga 09.00 til 18.00.
Salalaug mánudaga til fimmtudaga 06.30 til 22.00, föstudaga 06.30 til 20.00, laugardaga og sunnudaga 10.00 til 19.00.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Frábær tilboð á árskortum í Kópavogi


Árskortin í Kópavogi eru á frábæru tilboðsverði þessa dagana. Árskort kostar aðeins kr. 31.990.- eða 2.666.- kr. á mánuði með vaxtalausum Visa/Euro léttgreiðslum. Ef tveir eða fleiri kaupa saman kort kostar kortið einungis kr. 29.990.- eða kr. 2.499.- á mánuið með vaxtalausum Visa/Euro léttgreiðslum. Er hægt að láta svona kostaboð framhjá sér fara? Það gerist varla ódýrara fyrir líkamsrækt, spinning og sund, hvetjum alla til að kynna sér þetta frábæra tilboð. Kortin gilda að sjálfsögðu í báðar sundlaugarnar í Kópavogi, þ.e. Salalaug og Sundlaug Kópavogs.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Frábær tilboð á árskortum í Hafnarfirði


Nú er í gangi frábært tilboð á árskortum í Hafnarfirði. Árskort kostar aðeins kr. 29.990.- eða 2.499.- kr. á mánuði með vaxtalausum Visa/Euro léttgreiðslum. Það gerist varla ódýrara fyrir líkamsrækt, spinning og sund, hvetjum alla til að kynna sér þetta frábæra tilboð. Minnum jafnframt á að kortin gilda einnig sem sundkort í Ásvallalaug og Sundhöllina í Hafnarfirði.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Nýjung hjá ACTIC í Kópavogi og Hafnarfirði - grunnskóla árskort 7. - 10. bekkur aðeins kr. 19.990.-


Margir foreldrar hafa óskað eftir að fá að æfa með börnum sínum í Actic stöðvunum. Nú bjóðum við þessa frábæru nýjung, börn í 7.-10. bekk geta æft hjá okkur og notið leiðsagnar þjálfara.
Nemendur í 9. og 10. bekk mega æfa sjálfir í Actic samkvæmt þjálfunaráætlun þjálfara Actic. Nemendur í 7. og 8. bekk mega eingöngu æfa í fylgd fullorðinna/forráðamanna (eldri en 18 ára).
Grunnskólaárskort kostar aðeins kr. 19.990.- eða 1.666 kr. á mánuði með vaxtalausum Visa/Euro léttgreiðslum.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Frístundarkort Reykjavíkurborgar


Actic heilsurækt ásamt Sundlaug Kópavogs og Salalaug eru nú samstarfsaðilar Reykjavíkurborgar með Frístundarkort ÍTR. Fyrir þá sem ætla sér að nýta styrkinn til að kaupa kort hjá Actic heilsurækt þurfa að koma með útprentun og framvísa henni. Á útprentuninni þarf að koma fram staðfesting á því að styrkurinn sé ætlaður til kaupa á kortinu.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Nýjung hjá Actic - Heilsupistlar


Við höfum ákveðið að brydda uppá þeirri nýjung á heimasíðunni okkar að birta Heilsupistla sem skrifaðir eru af sjúkraþjálfurum og/eða þjálfurum Actic. Um er að ræða stuttar greinar sem fjalla um afmarkað efni en eru mjög gagnlegar fyrir alla. Við vonum að sem flestir nýti sér þessa þjónustu. Heilsupistlarnir munu verða hýstir á síðurnni Heilsupistlar (sjá í valmynd efst á síðu) en jafnframt mun inngangur þeirra verða birtur hér á fréttasíðunni. Njótið vel.
Fyrsti pistillinn er eftir Hlöðver B. Jökulsson sjúkraþjálfara og leiðbeinanda hjá Actic. Fjallar pistillinn um áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Nýjung hjá ACTIC í Kópavogi


Actic býður nú iðkendum sínum uppá ráðgjöf sjúkraþjálfara án endurgjalds. Valgeir Viðarsson sjúkraþjálfari mun verða með viðveru í stöðvum Actic í Kópavogi í viku hverri. Þjálfarar Actic veita nánari upplýsingar um viðverutíma Valgeirs í hvorri stöð fyrir sig. Við vonum að sjálfsögðu að iðkendur eigi eftir að taka þessari nýjung fagnandi og hiki ekki við að nýta sér hana.
Starfsfólk Actic á Íslandi


ACTIC þjálfara í fræðslu- og hópeflisferð í Vestmannaeyjum


Föstudaginn 13. ágúst síðastliðinn fóru þjálfarar ACTIC í fræðslu- og hópeflisferð til Vestmannaeyja. Tilgangur ferðarinnar var að fara yfir áherslur haustsins en ekki síður til að kynnast betur og skemmta sér saman. Óhætt er að segja að ferðin hafi tekist vel enda einvalalið sem starfar hjá ACTIC. Bryddað verður uppá nýjungum í starfseminni á næstu vikum og munu þær verða kynntar sérstaklega hér á heimasíðunni auk þess sem við hvetjum alla til að ganga í ACTIC hópinn á Facebook því þar verða nýjungarnar einnig kynntar.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Frábær stemmning í RISA spinningtíma á sundlaugarbakkanum


Síðastliðinn þriðjudag 10. ágúst kl. 17.15 var haldinn RISA spinningtími á sundlaugarbakkanum í Sundlaug Kópavogs. Ríflega 70 manns tóku þátt í tímanum og var stemmningin frábær í veðurblíðunni. Smelltu hér til að sjá nokkrar myndir sem teknar voru í spinningtímanum.
Við þökkum öllum þeim sem tóku þátt í tímanum fyrir skemmtunina.
Minnum á að spinning samkvæmt stundaskrá hefst aftur eftir sumarleyfi þann 23. ágúst næstkomandi.
Starfsfólk Actic á Íslandi


RISA spinningtími á sundlaugarbakkanum


Kæri Actic meðlimur, þér er boðið í frábæran úti spinningtíma í Sundlaug Kópavogs þriðjudaginn 10. ágúst kl. 17.15.
Til að þú fáir örugglega hjól biðjum við þig að hringja í Kjartan í síma 866 3084 og skrá þig. Allir sem skrá sig fá frábæra gjöf að launum.
Spinning samkvæmt stundaskrá hefst aftur eftir sumarleyfi þann 23. ágúst næstkomandi.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Nautilus heilsurækt skiptir um nafn og verður Actic líkamsrækt og sund

Í kjölfar breytinga móðurfélagsins í Svíþjóð þá hefur nafni Nautilus heilsuræktar verið breytt í Actic líkamsrækt og sund. Þessi breyting breyting er tilkomin vegna aðgreiningar frá Nautilus tækjaframleiðandanum sem tengist fyrirtækinu eingöngu í gegnum tækin sem notuð eru í Actic stöðvunum.
Nafnaskiptin hafa enga breytingu í för með sér gagnvart iðkendum og mun Nautilus nafnið detta út í rólegheitunum næstu misserin. Þess er rétt að geta að fjárhagsstaða Actic er gríðarlega góð og er fyrirtækið skuldlaust með öllu sem skýrir m.a. afhverju hægt er að bjóða uppá svo lágt verð sem raun ber vitni.
Að lokum hvetjum við þá sem ekki eru iðkendur til að hringja í okkur og fá ókeypis prufutíma um leið og við þökkum þeim þúsundum iðkenda sem stunda sína líkamsrækt hjá Actic.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Actic á stórri sýningu (IHRSA) í USA

Forsvarsmenn Actic á Íslandi voru á dögunum á stórri líkamsrækarsýningu í San Diego, Californíu. IHRSA (International Health, Raquet & Sportsclub Association, sjá www.ihrsa.org) sýningin í ár hafði upp á að bjóða ýmislegt fróðlegt er tengist heilsuræktargeiranum. Actic mun halda áfram að fylgjast með því nýjasta sem er að gerast í heilsuræktargeiranum og því munu iðkenndur Actic áfram fá framúrskarandi leiðsögn og að sjálfsögðu að æfa í bestu tækjunum á markaðnum.
Þess má geta að Actic er nú eina stöðin á Íslandi sem er með Star Trac spinning hjól. Star Trac er eigandi spinning vörumerkisins (þess vegna mega eingöngu aðilar með Star Trac spinning hjól kalla tíma sína spinning), við erum bæði stollt og ánægð með að geta boðið okkar iðkendum uppá þessi tæki.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Tíunda Actic heilsuræktin komin á kortið

Í byrjun ársins opnaði Actic tíundu stöðina hér á landi. Nýjasta stöðin er í íþróttamiðstöðinni Vík í Mýrdal. Actic vill þakka frábærar viðtökur við opnun stöðvarinnar.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Spinningtímar í Suðurbæjarlaug Hafnarfirði

Nú eru spinningtímarnir komnir á fullt í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði. Þessi nýjung hefur vakið mikla athygli og fengið gríðarlega góðar viðtökur. Við þökkum fyrir það um leið og við hvetjum alla til að mæta og taka þátt. Sjá stundaskránna undir valmyndinni Spinning efst til hægri á síðunni.
Starfsfólk Actic á Íslandi


Actic líkamsrækt og sund á sama stað í Sundlaug Kópavogs, Salalaug í Kópavogi, Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði, Íþróttamiðstöðinni á Álftanesi, Íþróttamiðstöðinni Vogum og Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum:


Actic heilsupróf

Læknar Actic í Svíþjóð hafa hannað ítarlegt heilsupróf fyrir meðlimi Actic. Í prófinu er m.a. kannað þol, styrkur, liðleiki, fitu%, blóðþrýstingur, BMI og fleira. Prófið er mjög vandað og hefur reynst mjög vel í Svíþjóð. Prófið kostar 3900kr og tímapantanir eru hjá Kjartani yfirþjálfari Actic á Íslandi virka daga milli 9-15 í síma 8663084.

Starfsfólk Actic á Íslandi


Ókeypis fitumæling!

Viðskiptavinir Actic á Íslandi geta fengið ókeypis fitumælingu í stöðvum Actic. Hafið samband við þjálfara og fáið nánari upplýsingar.

Starfsfólk Actic á Íslandi


Ókeypis prufutímar hjá Actic

Hjá Actic á Íslandi getur þú farið í ókeypis prufutíma undir leiðsögn þjálfara. Hafðu samband með því að hringja í viðkomandi stöð og pantaðu tíma (símanúmerin finnur þú neðst á síðunni).

Starfsfólk Actic á Íslandi tekur vel á móti þér!


© Actic - Actic á Íslandi - Símanúmer: 570 0470 (Sundlaug Kópavogs), 570 0480 (Salalaug í Kópavogi), 565 3080 (Suðurbæjarlaug Hafnarfirði), 565 2511 (Íþróttamiðstöð Álftaness), 424 6545 (Íþróttamiðstöðin Vogum) og 481 2401(Íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum)  - Senda póst

Tilkynningar:

Við bjóðum uppá gott verð á árskortum. Sjá hér

Hjá Actic á Íslandi getur þú pantað prufutíma undir leiðsögn þjálfara án nokkurs kostnaðar!
Kíktu á hópinn okkar á FACEBOOK

 

| All Rights Reserved | .
jewellery
jewellery Counter .
send flowers
send flowers Counter